|
|
21.08.2007 09:19:54 / sidds
Ég er fluttur, tók forever að flytja allt draslið mitt, panta bíl undir það og organisera allt heimil upp á nýtt, en mér tókst þetta á endanum. Takk fyrir að hjálpa mér ekkert. Þetta var níðþungt! Sem sagt, fluttur á www.siddinn.bloggar.is eða.. www.siddinn.bloggar.is ps. hversu töff væri að kunna að skrifa allt í Wingdings ? Ætla að senda öllum Jólakort í wingdings letri. bleeeehh !!
»
15.08.2007 11:50:34 / sidds
Er alveg
hætt að vera leiðinlegt veður í Keflavík, eða hef ég bara
verð svona lengi í sveitinni? Minnir mig á gott móment sem ég
átti með Hinna á bílabaðinu í fyrradag sem sannar algjörlega
hversu langt sveitin er á
eftir.
Ég: “Hey, ég
sá að það var að koma út ný Toyota. Toyota
Auris.
”Hinni: “Hvar
ertu búinn að vera maður, þetta er 3ja mánaða gömul
auglýsing.
Ӄg:
“..ó...” (og skömmin tók
völdin)
Reyndar er
mér alveg sama þótt ég sé að lubbast í hugsun, því núna er ég
að upplifa hluti sem að þið borgarbörn takið sem sjálfsögðum
hlut, eins og skyndibitamatur. Ég varð náttúrulega að fara
beint á Olsen um leið og ég kom heim og hef farið 3svar
síðan. Subway kom næstur og svo Kentuky. Lífið er bara betra
með twister.
Bið að heilsa
Láru Kláru, sem er skiptinemi í Paragvæ núna. Þið sytkinin eruð
frábær ! -Lára og ég í Djúpuvík í sumar
-
En jæja ég lofaði
eikkerju um Verzlunarmannahelgina og hér kemur smá samantekt af því
helsta.
-
Ég, Hinni,
Andri og Arnór fórum á föstudagskvöldi og flugum frá Bakka í
frekar misjöfnu veðri. Það væri ekki frá sögu færandi nema
fyrir það leiti að við vorum með aaaallt of mikinn farangur,
mat, stóla, dýnur tjald, 2 gítara, fullt af bjór og nefndu
það. Okkur tókst á einhvern óskiljanlegann hátt að svindla
þessu öllu með.
-
Þegar við
lentum í Eyjum var ennþá meira vesen að koma öllu draslinu
niður í dal, því að við vorum ekki á neinum bíl og milljón
manns að bíða eftir taxa á flugvellinum. Eftir ígrundun,
ákvað ég að hringja í Skutluna og athuga hvort að þeir væru
ekki með þjónustu í Eyjum, ig viti menn.. þeir voru það!
Aðalmálið var að allir vildu ræna bílnum okkar, svo í
örvæntingu okkar þóttumst við vera hljómsveitin
“Eyjar” (ekki spyrja útí nafnið) og allir
báru allt í einu virðingu fyrir okkur og leyfðu okkur að
hirða allann bílinn, nema að við tókum 2 stráka sem við
kynntumst á flugvellinum með okkur, af
Karma-ástæðum.
-
Ég man
nánast ekkert eftir fyrsta kvöldinu, nema það að ég endaði
heima í tjaldi í engum buxum með Andra og Elísu. Sagan segir
samt að ekkert hafi átt sér stað, en buxurnar eru ennþá
ófundnar.
P.s. Hinni lenti
í slag við einhvern gaur sem að setti útá Pepsíið hans, hahahaha
-
Laugardagurinn var geeeegggjaður. Veðrið
tók þvílíkum stakkaskiptum og sólin var brennandi sko. Við
sátum í þynnkunni berir að ofan að rifja upp gærkvöldið og
svo þróuðust samræðurnar útí eikkað kjaftæði. Meðal annnars
útskrift við Menntaskólann Hraðbraut, sem er víst alveg
geeðveikt fljót afgreidd
hahaha... Síðan sýndum við Arnór
danshæfileika okkar með tveimur “sexum”, broadway style.
Fórum í sund, eða öllu heldur kjötmarkaðinn. Vá, hvað
íslenskar stelpur eru ótrúlega fallegar upp til hópa. Við
megum vera stolt. Mikið var nú hlegið
dátt.
-
Það
safnaðist jafnan myndarlegur hópur af fólki hjá okkur að
syngja með okkur, því við spiluðum á gítarinn frá því við
vöknuðum þangað til að við drápumst. Minnistæðastir voru
Ástralarnir sem að reyndu að syngja “Lífið er yndislegt” og
báðu um “Angels” með Robbie Williams. Over my dead
body...
-
Laugardagsdjammið var svo litríkt til að
segja sem minnst, við Hinni enduðum saman í brekkunni í
eikkerjum kúrufíling með 2 stelpum að horfa á
flugeldasýninguna, ég hafði aldrei séð þetta kvennfólk áður
og áður en að kvöldið var úti langaði mig ekkert að sjá það
aftur. En við Hinni dönsuðum eins og vitleysingar við Toby
Rand úr Rockstar Supernova og Tóti af öllum mönnum kom og
eyddi 4-5 bjórum í að hella yfir alla þarna og littla
stemmningin!! Nema stelpan sem reyndi að
karate sparka alla niður á dansgólfinu.
Whuut???
-
Andri
greyið missti af ÖLLU laugardagsdjamminu, því hann var í
kærustuleik! LAME... Gisti ekki einu sinni í dalnum þessa
nóttina. En til að toppa þessa nótt þá áttu 2 piltar í
vinahópnum eftir að eiga það ansi vænlegt þessa nóttina
Vel gert piltar.
-
Sunnudagur
og aftur var geggjað veður. Ég hafði komið með regngalla og
allt með mer en hingað til hafði ég látið mér nægja að vera í
eins fáum fötum og hægt var. Ég ákvað að klífa dalinn áður en
við færum heim og ég plataði Hinna með mér. Tókum með okkur
nokkra bjóra og stoppuðumí hálfri brekkunni, svona 200 metra
hæð og töluðum lengi vel um lífið og tilveruna með þetta líka
útsýnið. Eitt besta spjall sem ég hef átt við Hinna, eikkað
sem að styrkti okkar vináttu enn frekar. En greyið pungurinn
var svo lofthræddur að hann ætlaði ekki að þora að klára upp
dalinn. Mér tókst á endanum að sannfæra hann um að klára og
þegar þangað var komið var ég ekki alveg tilbúinn að hætta,
enda kominn þetta langt. Ég ákvað því að klífa bara allann
Heimaklettinn og það gerði ég. Stóð uppi á hæsta punktinum og
horfði yfir Vestmannaeyjar í allri sinni dýrð, magnað
útsýni!
-
Svo var það
sunnudagsdjammið sem að einkenndist af tekíladrykkju til að
byrja með og svo fáranlegri hugmynd um að streak-a í
tjörninni á miðnætti. Ég veit ekki hvað varð til þess að við
samþykktum að gera þetta, en það var bara svo undarlegt með
þessa helgi að það voru allir í svo miklu stuði að það skipti
engu máli hvað það var sem var stungið uppá, það var bara
framkvæmt. Svo við gerðum það bara, og allir mættu naktir í
tjörnina í Eyjum 15 mínútum fyrir miðnætti og Gumma fannst
snjallræði að pissa bara á alla, eikkað fettish held
ég.
-
Hlupum
síðan aftur upp í brekku til að ná flugeldasýningunni og ég
og Gummi rétt náðum þessu og ég bara verð að segja ykkur sem
ekki hafið farið, þá er þetta eitt það fallegasta sem ég hef
séð. Mörg þúsund manns í brekkunni og allt lifnar við í einu
ljósahafi. Einfaldlega toppaði allt. Svo héldum við bara
áfram að djúsa og tylltum okkur í brekkunni hjá öllum
Keflvíkingunum sem voru mega margir og áttum bara eitt
allsherjar djamm, þar sem mér skilst að ég hafi tilkynnt
einni snót að ég ætlaði að kvænast henni í framtíðinni.
haha, ekki er öll vitleysan eins. Hver veit nema ég standi
við það sæta 

Nennti
ekki að snúa þessum myndum, en heavy töff engu að
síður.
-
Við vorum
svo farnir heim snemma um morguninn til að festast ekki í
mannfjöldanum, en þar sem allir nema ég voru ekki í ástandi
til að keyra, þurftum við að bíða á Bakka í 5 klukkutíma! En
eins og öll ferðin var, þá var það ekkert leiðinlegra en
neitt annað í þessari ferð. Við skildum Hinna eftir
áfengisdauðann í brekku og fórum á Hvolsvöll og fengum okkur
pizzu sem að rétt náðist að melta sökum hláturskasts um 2
homma á Þjóðhátíð í brekku að gera vafasama hluti við hvorn
annan innan um allt fólkið!!
Priceless..
Þannig fór
með sjóferð þá, og ég verð bara að þakka ykkur fyrir bestu
Verzlunarmannahelgi sem ég hef upplifað, strákar. Þetta
verður endurtekið á næsta ári, ekki
spurning.

Ég ætla að
láta þetta vera mitt síðasta blogg í bili, hef ákveðið að
einbeita mér að öðrum hlutum, svo nenni ég þessu bara
einfaldlega ekki. Var að byrja að vinna hjá Kynnisferðum í
þægilegasta djobbi sem ég hef haft og svo er karfan farin að
rúlla á fullu og ég ætla að koma sterkur til baka í Desember
þegar ég má byrja að spila aftur. Þangað til æfi ég vel með
liðinu og hugsa minn gang.
"Hugsa
minn gang .. "
Takk fyrir
samfylgdina..
Sigurður
Friðrik Gunnarsson
»
08.08.2007 22:47:09 / sidds
Hvar á maður að byrja..
Ætla að hafa þetta ógó spókó mikið stutt, er svo
heavy búinn á því að ég efast um að ég lifi nóttina af sökum
þreytu..
Ætla bara að gera ykkur spennt fyrir næstu færslu, en þar
er á nógu að taka..
Er sem sagt fluttur aftur heim eftir ógleymanlegt sumar á
Hólmavík, til að segja sem minnnst.
Verzlunarmannahelgin toppaði svo allt sumarið, en ég skil ekki
hvað ég var að pæla að hafa aldrei farið áður á
Þjóðhátíð... Stupid me MAAAAGNAÐ STUÐ og allir
félagarnir saman komnir að skemmta sér eins og þeim einum sæmir....
Einhver með harðsperrur í maganum eftir hlátur strákar ?? hahaha..
Nóg um það næst..
Karfan er byrjuð aftur og er það ástæðan fyrir því að ég
er svona mikið þreyttur. Undirbúningstímabilið er ekkert eðlilega
strembið alltaf og Frikki er alveg í sérflokki í því að fá mann til
að kvíða næstu æfingu.
Er kominn í nýja vinnu líka, en ég segi ykkur betur frá þessu
öllu saman þegar ég hef fundið púls í sjálfum mér.. Núna er ég
farinn að sofa.
Þangað til næst...
Sigurður Friðrik Gunnarsson
»
30.07.2007 20:07:25 / sidds
Seiðandi tónar „The Rapture“ og „Four Tet“
fylla mig svo þvílíkum Verzlunarmannahelgaþorsta að annað eins
monster hefur ekki sést .... partýið lifir áfram...
Shiit.... síðustu 48 tímar hafa verið of
hraðir til að muna eftir. Til að rifja upp atburðarásina þá var ég
á leiðinni heim í Keflavík yfir Verzlunarmannahelgina að slaka á
fyrir undirbúningstímabilið í faðmi fjölskyldunnar og rúmsins míns,
þar sem ég er búinn að sofa á dýnu í allt sumar fannst mér það
alveg kærkomið.
Þá gerist það að Hinni hættir með kærustunni
sinni, og lífið tekur ansi athyglisverða U-beygju og núna erum við
bara á leiðinni til Eyja á
Þjóðhátíð í fyrsta skipti... What are the odds... ?
Þetta er tvísýnt ástand, spáir heavy
leiðinlegu veðri og ég er að fara með flugi frá Bakka í rellu sem
að rumar 6 manns. P.s. Einhver séð myndina „La Bamba“
nýlega ?
Veðrið er alls ekki að fæla mig frá því að
fara, hef verið að leita eftir tilefni til að viðra SKÆÆÆR-gula
regngallann minn í allt sumar og nú er komið að því greinilega.
Anyways, heavy spenntur...
Útí annað... Bryggjuhátíðin var betri en ég
hafði þorað að vona, og samt hafði ég vonað frekar fast
!
Föstudagskvöldið var by far skemmtilegast þar
sem Hinni fór á kostum í að vera fulli/hressi gaurinn sem að fékk
til að muna gamla tíma og margar sprenghlæjilegar minningar. Sá
Nönnu og crewið meðal annars og fleiri góða
til, Davíð Hallgríms (dunno why?), Ástu Rós, Dóru og crewið þeirra
og Garðbúana sídjammandi að sjálfsögðu og fólk sem ég kann engin
deili á.
Við töpuðum reyndar fotboltaleiknum á
laugardaginn 3-2, kannski af því að við vorum allir meeega þunnir
og varla sofnir, (tókum 3 klukktíma svefn og svo beint í afréttara)
EEEEEN... ég skoraði mark !! Já já, hvað haldiði
maður... VAr búinn að lofa því og alles mar.. Stend alltaf við mín
orð. Kom okkur yfir 1-0 í fyrri hálfleik eftir einleik og skot og
lika eftir sendingu frá Hinna (má ekki gleyma að þakka fyrir
sendinguna sko ). Við áttum líka geggjað töff fagn með markinu
mínu, hahaha... Ég Siggi og Andri tókum bylgjuna (hönd-í-hönd)
fyrir framan áhorfendur sem að hlóu dátt að þessu athæfi okkar og
það stökk bros á margar einhleypar konur í stúkunni sem allar vildu
vera með í ástarbylgjunni okkar. Eða nei... ekki það.
Djammið tók samt öllu fram og skemmti ég mér
eins og áður segir heavy vel, nema hvað ég sofnaði um leið og
hljómsveitin var búin að spila sitt síðasta á ballinu og var bara í
tjaldstemmningunni út kvöldið.
Skemmtið ykkur vel hvar sem þið verðið um
Verzló, þið vitið hvar mig verður að finna..... bíddu, oki.. Núna
var Andri að ákveða að fara líka með á Þjóðhátíð með okkur..
Hlutirnir að gerast og ég skila bara kveðju to all you homies out
there!
Þangað til næst...
Sigurður Friðrik Gunnarsson (Lífið er
yndislegt)
»
20.07.2007 17:17:40 / sidds
Já, nú mega helvítis Gallarnir fara að vara sig. 
Bryggjuhátíð á Drangsnesi er þessa helgina og búast má við múg
og margmenni hingað í Strandasýsluna fyrir hátíðahöldin. Þið ykkar
sem mættuð á Hamingjudaga á Hólmavík og skemmtuð ykkur vel, þá er
þetta sko ekkert síðra dæmi. Þetta hefur verið mun fjölmennari
hátíð í gegnum árin og miklu meira stúss í kringum. Svo er líka
bara spáð glampandi sól alla helgina og hefur verið ákveðið að færa
Nauthólfsvíkina hingað yfir helgina.
Kíktum í pottana á Drangsnesi í gær í einn kaldann og það var
strax komið helling af liði (á fimmtudegi fyrir
hátíðina) og þar af nokkrir vel valdir Suðurnesjabúar.
Bæti því við að Baldur í Punma-sveitinni setti met í sjósundi þegar
hann synti frá pottunum og að bryggjunni, sem er um 250 metrar.
Hann hefur ekki sést síðan...
Baldur, a.k.a. Sjókötturinn
Drangsnes er lítill bær rétt utan við Hólmavík og er mikill
íþróttarígur á milli þessara bæja.
Það verða án efa sötraðir nokkrir ískaldir í
pottunum á Drangsnesi um helgina!
Á morgunn er hinn árlegi leikur á milli
Geislans (Hólmavík) og Neistans
(Drangsnes) í fótbolta og þar verður ykkar maður í fremstu víglínu,
eða kannski ekki fremstu. Verð hafsent eða miðvörður og mun stoppa
allt sem kemur nær markinu en 40 metra ... daaaamn
right...
Hinni og Arnór koma líka inn í liðið þrátt fyrir að hafa ekkert
æft með liðinu í sumar, en við treystum á að geta þá bara kennt
þeim um ef illa fer 
Ég hef ákveðið að heita 5.000 krónum á líknarfélag stúdenta í
bjórneyð fyrir hvert skorað mark sem ég set...

Þessi missti af Bryggjuhátíð í fyrra og hefur ekki náð sér síðan
..
Ég hef bara eitt að segja elsku kiðlingarnir mínir, don´t be
THAT dude !
Lög dagsins: Lovestoned -
J.T.
Harder, better, faster, stronger - Daft Punk
Flugufrelsarinn - Sigurrós
By the way, nýji Chemical Brothers diskurinn
er kominn út og er víst algjört PARTÝ !!
Þangað til næst...
Sigurður Friðrik Gunnarsson
»
11.07.2007 22:09:48 / sidds
Um hvað bloggar maður þegar maður ekkert að segja eða engu að
segja frá? Er þá ekki bara betra að sleppa því yfir
höfuð?
Hefði alveg viljað fara út einhverjar pólitískar pælingar
hérna, stöðva nokkur álver og fara að safna þúsundum manna í
mótmæli. Kannski erum við bara búin að sætta okkur við það að
náttúran er bara glötuð og við þurfum hana ekkert hvort eð er.
Ekki ég, og ekki Andri heldur (vona ég, annars
yrði það frekar lame ef ég stæði einn með þessiari
fullyrðingu)
Af hverju mótmæla Íslendingar aldrei neinu? Ég meina
alvöru mótmæli. Ekki bara Sigurrós og 3 hippar á Arnarhóli að borða
endurunnin pappír. Það hafa allir eitthvað að segja, og allir
að kvarta yfir hinu og þessu, sem á alveg rétt á sér en það nennir
bara enginn að gera nokkurn skapaðann hlut í málinu.
Vissuð þið að í Frakklandi í denn, þá mótmælti fólk í
tugþúsundatali fyrir framan Bastilluna (höll
konungsfjölskyldunnar) og oftar en ekki var ráðist inn í höllina og
konungurinn tekinn af lífi fyrir slæma stjórnarhætti. Tough crowd
??
Það er lýðræði !
Hvernig væri að valsa inn í Seðlabankann og þruma Davíð í
grillið fyrir Írak og fleiri strákapör sem gríslingarnir gerðu af
sér. Tala nú ekki um að taka Árna Johnsen og sparka í
sköflunginn á honum fyrir að stela pening af Ríkinu og biðja
síðan um uppreins æru, eins og ekkert sé sjálfsagðara. "Rosalega
var hann sorry yfir þessu mar". 
Já, við kjósum hann bara aftur á þing. Nice.....
Fyrir mér er Ríkið afstætt hugtak. Ég held að við séum bara
þannig mótuð að við þorum ekki gera neitt, því enginn vill missa
coolið. það er víst svo anslegt að standa fyrir einhverjum málstað
sem að maður trúir á. Kjósum bara og röflum í 4 ár og þessi rútína
gengur bara út okkar grátbroslega líf, hvort heldur sem
stéttaskipting aukist, velferðarmál fara hrörnandi og landið okkar
gránar smátt og smátt.
Veistu hvað ég elska við Ísland. Ég get keyrt í 5 mínútur
og stoppað bílinn, fyllt vatnsflöskuna mína af isköldu vatni úr læk
eða á og það bragðast betur en í krananum heima.
Er það þess virði að bjarga? Eða er ég bara einn af hippunum á
Arnarhóli?
Wooord ...
En hverjum er ekki sama, ég hef hvort eð er ekkert að segja.

Þangað til næst..
Sigurður Friðrik Gunnarsson
»
06.07.2007 16:33:51 / sidds
Já, rétt er það. Kominn heim yfir helgina, mætti kl 4 i nott
ásamt Andra, Kolla og Billu og við ætlum að vera í góðu chilli yfir
helgina. Mikill straumur á írska daga en ég held að það verði
algert varaplan.
Stefnum að því að grilla í kvöld og kikja pottinn með 1-2
kalda, allt annað verður að ráðast.
Síminn minn er dauður, hann gaf upp öndina fyrir viku síðan 8
mánaða gamanll greyið. Hann skilur eftir sig hleðslutæki og
auka-front. Getið nálgast mig í heimasímanum
(421-3813) eða í símanum hans Andra (866-0101).
Hafið það gott yfir helgina, hvort sem það er í Eyjum á
Goslokahátíð eða á Skaganum á Írskum dögum eða á Siglufirði í
bullinu.
By the way, Bjarni Guðjónsson.. Þú ert ómerkilegur lítill kall.
Vonandi sefurðu vel, kútur.
Þangað til næst..
Sigurður Friðrik Gunnarsson
»
24.06.2007 15:13:26 / sidds
Hólmavík breiðir arma sína yfir mig á sunnudegi fallegum. Það er
merkilegt að hér er alltaf gott veður, og það sem að við köllum
logn fyrir sunnan, kalla þeir vind. Aldrei rok hérna eða ?
Annars er allt gott að frétta, búinn að vera mikið að vinna sem
þjónn og á barnum um helgar og þetta er bara fín vinna. Fæ að borða
eins og ég vil og þeir sem mig þekkja eikkað vita að ég er alltaf
étandi, svo það er stór plús. Bára, sú sem að á staðinn og sér um
að kokka er líka bara ánægð að hafa einhvern sem er alltaf til í að
smakka eitthvað nýtt.
Var að vinna á "balli" sem haldið var í gær. Heiða Idol og
hljómsveit spiluðu fyrir dansi og ég hef alveg upplifað meiri
stemmningu, en þar sem þetta er bæjarfélag uppá nokkur hundruð
íbúa, þá dæmi ég ekki af hörku.
Hamingjuhelgi hérna næstu helgi, svipað og írsir dagar, danskir
dagar og svoleiðis bæjarhátíðir. Veit ekki hversu mikið gaman er á
þessu, en það er von á múg og margmenni skilst mér. Ég er reyndar
að vinna alla helgina, en Unnur var svo indæl að leysa mig af í
nokkra klukkutíma svo að ég geti tekið þátt í
innanbæjarfótboltamótinu með strákunum. Alltaf fótbolti í gangi
hérna og ég held að ég hefði alveg getað haldið áfram að æfa bolta
þegar ég ákvað að hætta, maður kann þetta ennþá.
Ég er búinn að búa hjá Andra síðan ég kom að undanskilinni einni
nótt sem ég eyddi heima hjá Kolla. Búskapurinn með Andra er bara
skemmtilegur og við höfum verið duglegir að elda og svona, gerðum
okkur dagamun í gær og vorum með fillet í matinn. Þvílíkir
greifar.
Er að hlusta á Bang Gang í rólegheitunum, pabbi hans Andra (41)
og fósturmamma hans (sem er einu ári eldri en ég... PIMP) eru búin
að vera hjá okkur síðan í gær og ég hef sjaldan kynnst jafn
skemmtilegu fólki. Eldhress alveg.
Held að það sé ekkert merkilegt að segja frá. Lífið gengur sinn
vanagang og það gerist fátt markvert hérna og mikill tími fer í að
skoða náttúruna sem er byt he way drop dead gorgeous hérna. Ég á
það til að setjast út og horfa á þokuna læðast yfir vatnið á
kvöldin með góða tónlist í eyranu. Fæ aldrei nóg af landslaginu
hérna.
Þangað til næst...
Sigurður Friðrik Gunnarsson
»
10.06.2007 12:04:39 / sidds
Jæja, þá
er maður bara kominn heim eftir ótrúlega 2ja vikna dvöl á
Tyrklandi með hinum útskriftarnemunum. Shjiii... Ég átti von
á skemmtilegri ferð, en þetta fór bara langt fram úr mínum
væntingum. Núna þegar maður er kominn heim þá saknar maður
þess ótrúlega mikið að vera ekki að vakna og fara niður í
morgunmat (scrambled eggs and chips) og leggjast
síðan á sundlaugarbakkann með kaldann við hönd, spila
sund-blak eða vatnapólo, fara í póker með strákunum eftir
hádegi, skjótast á jet-ski, eða bara rölta niður í bæ og
prútta allt heilagt niður fyrir skynsöm mörk. Váá, ég er að
bilast núna.. Langar ekkert smá að eiga einn svona dag
inni.
Er að hlusta á
lögin sem að voru mest spiluð í þessari ferð og það liggur við að
maður fellir tár við tilhugsunina um allar ógleymanlegu
minningarnar sem að urðu til, vinskapurinnn sem myndaðist milli
allra og sú staðreynd að við munum aldrei upplifa þessa tilfinningu
aftur.
Ég ætlaði mér
að skrifa heilann helling um þessa ferð og jafnvel koma með dagbók
líkt og ég gerði í fyrra, en ég held að ég leyfi minningunni bara
að lifa í okkur sem að fóru og segi ykkur frekar bara það helsta
sem að bar uppá í þessari
ferð.
-
Spiluðum
mega yatsi á leiðinni út, aldrei upplifað aðra eins
stemmningu í kringum yatsi. Á meðan voru aðrir góðir fullari
en allt sem fullt getur orðið

-
Lenti með
Kolla í herbergi. Okkar herbergi varð að íþróttaleikvangi
samstundis, tókum 3ja tíma hackey sack þegar við komum á
hótelið.
-
Fleiri
íþróttir sem að voru stundaðar í herbergi 720 voru meðal
annars: Fitness, skylmingar, fótbolti og handbolti. Ekki
spyrja, þetta erum bara við í hnotskurn

-
Borðaði
a.m.k. 6 sinnum T-bone steikur í þessari ferð, sem að kostuðu
allt undir 2.000 krónur þriggja rétta máltíðir. Það var
alltaf borðað grand, enda kostaði það ekki
rassgat.
-
Fór þrisvar
sinnum á Jet-ski, þar af einu sinni með Skúla Stein og fengum
við það komment á okkur að við værum ruglaðir og fengum ekki
að leigja aftur skíði þarna. Samt komum við 2svar í viðbót
Er alveg hel-veikur fyrir jet-ski þessa
dagana.
-
Spiluðum
mikið póker, við strákarnir, og voru pottarnir um og yfir
15.000 kall. Addi var ókrýndur kóngur til að byrja með en
fipaðist flugið og Hallur átti stórleik þegar tók að líða á
ferðina.
-
Bullaði og
bullaði í fyrrverandi kærustu minni, held að hún geti ekki
annað en verið sátt með mig eftir þessa ferð
Love you
Fríða baby !
-
Ég kyssti
Gylfa Má... Mæli ekki með því. (And the triangle is
complete! hahaha)
-
Fór í
Tyrkneskt bað, mega gott.
-
Kynntist
Múslí, og hann kom með okkur heim og allt. Þvílíkt frábær
gaur og það verður að teljast bara stórfurðulegt hvað hann
setti mikinn svip á þessa
ferð.
-
Kynntist
líka Róberti og Bergsteini. Tókum Róbert með okkur heim, en
Bergsteinn er bara klassa fyrir neðan Róbert svo hann rotnar
nuna bara í herbergi 809.
-
Fórum í
vatnsrennibrautagarð sem að mér fannst allavega geggjaður,
jafnast ekkert á við að vera skelþunnur og fara beint í
eikkerja vangefna rennibraut til að rétta sig
af.
-
Við
kynntumst geggjuðum trúbador sem heitir Mucho og hann ferðast
um heiminn og spilar á stöðum og meikar fínan pening á því.
Hann á hús á Marmaris og í Tælandi svo eikkað sé nefnt.
Draumalífið mitt.
-
Team U-Dub
tók Team Louis Vuitton í nefið í mini golfi
Egill og
Bryndís, það var virkilega gaman að kynnast ykkur úti, takk
fyrir allann hláturinn!! Full Sail Academy haustið 2008
??
-
Við fórum á
vatnspípustaði grimmt í þessari ferð, ég held að eplatóbakið
verði dregið fram í næsta aðalspartýi, no doubt
Sara þarf
bara að passa sig að fara ekki í eikkað Innlit-Útlit með
eikkerjum Tyrkjum 
-
Fólk gerði
misheimskulega hluti eftir fyllerí, held að Lilja og Guðni
komi sterk inn með gat í geirvörtuna og nefið dæmið
hahaha..
-
Ég fékk mér
annað tattoo, hjá sama gæja og gerði hitt á mig í fyrra.
Virkilega sáttur með bæði, enda eikkað sem að ég mun aldrei
sjá eftir að hafa sett á mig. Kominn með smá bakteríu fyrir
þessu, en ég er búinn að ákveða að næsta tattoo verði nafnið
á fyrsta barninu mínu, hvenær sem það nú
verður.
-
Gummi var
án efa maður þessarar ferðar og átti hvert stórkvöldið á
eftir öðru, var að redda okkur tilboðum á barnum hingað og
þangað, en best var samt þegar hann var bara byrjaður að
vinna á Galleon og mættur á barinn að blanda drykki !
Priceless..
-
Lenti í
símaötum frá Jóa Sævars og Þór tvö kvöld í röð. Var ekki
sáttur og ætlaði að hefna mín með því að kasta nokkrum köttum
inn í herbergið þeirra þegar þeir voru sofnaðir. Sá hrekkur
misheppnaðist svo um munaði og er hann til á vídeó.. Bíðið
bara..
-
Fórum á
speed bát 12 saman og mér tókst að tábrjóta mig í Titanic
eftirhermu.
-
Hitti
Bjössa Einars á djamminu á ógleymanlegann hátt! Hahaha.. Held
að það verði eikkað hlegið að því í framtíðinni Bjössi minn

-
Fór á allt
of mörg trúnó, það var bara eikkað í loftinu þarna úti sem að
gerði það að verkum að fólk opnaði sig held ég. Eftir á að
hyggja er ég mjög ánægður að hafa komið mörgu á hreint og
fengið að kynnast fólki betur. Þakka fyrir
traustið.
-
Einhverjir
voru böstaðir við að stela handsápu af klúbbum !! hahaha..

-
Verslaði
aðeins umfram það sem að ég hafði lofað sjálfum mér. Hvað get
ég sagt, ég bara elska að versla. “We goin
shoppin!!”
-
Síðast en
ekki síst þá hugsaði ég mikið um lífið og tilveruna og ekki
síst framtíðina í þessari ferð. Ég var einn í herbergi seinni
vikuna því að Kolli þurfti að fara heim og þessi seinni vika
var algert wake-up call fyrir mig. Ég var ábyggilega slakasti
djammarinn þarna úti og drakk kannski 7 daga af þessum 14 sem
að við vorum þarna og þar af var ég bara einu sinni alveg á
rassgatinu. Það segir mér bara að djammið er að verða svona
spari thing fyrir mér og finnst mér það ekkert sorglegt,
frekar jákvætt bara.






Fyrir þá sem
að lesa þessa síðu eikkað af viti ættu að vita að ég er miklar
taugar til FS og núna þegar
útskriftarferðin er búin þá stend ég í þröskuldnum í hurðinni
að lífi mínu. Ég veit ekkert hvert leiðin á eftir að liggja í
raun, það er margbreytilegt. Eina sem að ég veit er að ég vil
rækta vinasambönd mín við fólkið sem að stendur mér næst og
forgangsraða hlutum rétt. Ég vil læra af mistökum mínum sem
að ég hef verið að gera í lífinu og bæta mig sem mann enn
fremur. Ég hef breyst mikið á undanförnu 1 og ½ ári og það
besta við það er þegar fólk sem að hefur myndað sér skoðanir
á manni kemur upp að manni og segir að
maður er allt öðruvísi en það hélt. Ég veit að það var ekki
alltaf svoleiðis, en ef ég get unnið einn og einn yfir á mitt
band í einu og komið fram við aðra eins og ég vil að það komi
fram við mig, þá hef ég engar áhyggjur af því að upplifa ekki
hamingju í lífinu.
Ég er að fara
til Hólmavíkur í dag, réttara sagt eftir 4 tíma og ég verð þar í
sumar að vinna. Mér finnst rosalega sorglegt að vera ekki í
Keflavík í sumar, innan um alla vinina og aðalinn sem að ætlar sér
að halda sambandi um ókomna
tíð.
Ef þú átt leið
framhjá Hólmavík í sumar, staldraðu þá við á Kaffi Riis í
kaffibolla og spjalli, hefði gaman að
því.
Ég veit ekkert
hvernig verður með netsamband þarna og hversu virkur ég verð að
blogga. Þið hendið kannski á mig e-maili eða eikkað og segið mér
eikkað skemmtilegt úr Sunny Kef
J
Lög
sumarsins verða klárlega:
Maroon 5 – Makes me
wonder
Hello Goodbye
– In your arms
Alex Gaudino
–Destination Unknown
Rhianna &
Jay-Z - Umbrella
Þangað til
næst...
Sigurður
Friðrik Gunnarsson
»
19.05.2007 03:11:59 / sidds
Sup,sup, suuuup people!?
Hvað er að frétta?
Allir búnir í prófum vænti ég og föstudagurinn
(prófsýnidagur) nálgast óðfluga. Úrslitastund fyrir marga sem
að sváfu 93% af tímunum hjá Ægi Sig, ég
meina er annað hægt? Nei, nei.. much
love á Ægi Sig, hann veit alveg hvað hann er að tala
um.
Margt búið að vera í
gangi síðustu vikuna og skulum við staldra aðeins við og gera
upp vikuna í máli og
myndum.
Eftir að ég fékk
fréttir af því að ég myndi ná að útskrifast, lagðist yfir mig
virkilega notaleg kæruleysistilfinning. Lítill skratti tjáði
mér að nú skyldi mínum vinnudögum lokið í bili og ekkert nema
afslöppun kæmi til greina. –Og djöfull var ég
sammála...
Byrjuðum á
fimmudagskvöld heima hjá Joe Drumm sem að bauð okkur Puma
sveitinni til sín í Pre-Eurovision Party heima hjá sér.
Sömdum fullt af nýjum lögum fyrir sumarið og má til gamans
geta að nú hafa Puma sveitingar tekið upp West Ham lagið,
Blowing Bubbles, í notkun í útfærslu sveitarinnar.
Það var tekið vel í ölið þetta kvöld og leiðin lá til Atla á
Yello og vorum við þar eikkað fram eftir að hlusta á Helga
Val. Þurfti að lána honum gítarinn minn eftir að hans bilaði
eikkað. Hefði átt að kaupa sér alvöru græjur Endaði síðan
á Eurovision trúnó með Joey og Oddgeiri á Ný Ung.. haha.. já,
þetta getur maður greinilega. Þvílikt rugl
samt.
Síðan var ofuhelgi framundan, kosningar og Eurovision.
Óli boy var eikkað að hugleiða að halda afmælið sitt þessa helgina
og það er óhætt að segja að það hafi verið gert með trukki. Eyddum
öllum föstudeginum i að gera salinn klárann fyrir
laugardagskvöldið. Ætluðum að vera með kosningarnar og Eurovision á
breiðtjaldi og fullllt af bjór og bollu. Og goddamn.. þetta varð
heavy huggulegt. Fórum að versla og í ríkið þar sem að fólk gapti
bara. Vorum með 20 kassa af bjór, 4 kampavínsflöskur, 2 stórar
vodka og 2 stórar Passoa. Sounds like summer to me
Afraksturinn varð
mega gott party þar sem að óhætt er að segja að við höfum
drukkið fylli okkar og nægju... og gott betur! Fór svo niður
í bæ á Beer Fest þar sem að allir voru ofurölvi upp til hópa.
Shiii.. missti mig aðeins á dansgólfinu í hita leiksins, en
er það ekki bara í lagi stöku sinnum?
Læt flakka með
nokkrar myndir úr
partýinu:

Playberginn og ég.

Laadies 7 í hermannaþema eikkað og Helena Ósk og Byndís
fylgdu með.

Óli alveg helsáttur með kampavínið, bjórinn að heilla
meira sýnist mér.

Kamilla, Hinni og ég. Takið eftir höndinni á Hinna 

Halli Valli og Smári trúbadoruðst í afmælinu og voru drullu
þéttir !

Ari var hress og Gústi fékk smá lovin´..
Allur sunnudagurinn
fór svo í að þrífa samkomuhúsið eftir partýið og tók það góða
4 tíma. En það var samt massa stuð og ótrúlegt hvað það er
hægt að gera hundleiðinlega hluti skemmtilega með smá
afréttara..

Á mánudaginn var svo
fyrsti leikur Keflavíkur í deildinni ámóti KR þar sem að 16
meðlimir Puma sveitarinnar mættu til leiks og varð bara
temmilega góður stemmari á leiknum, greinilegt að við getum
betur samt. Vonandi að fólk hætti bara að tríta etta eins og
það sé bara hallærislegt að styðja sitt lið.
Allir game í etta þegar það
eru bikarúrslit, þá er þetta töff. Hehe, nei sitjið bara
þar sem þið eruð. Either you hate it or luv it (the
underdog´s on top, and I´m gonna shine..). Smá 50 fyrir
50

En leikurinn vannst
og Keflavík heldur KR-ingum ennþá hreðjataki.
Ríkissjónvarpið var að gera eikkað innslag
með okkur og voru camerur á okkur allann leikinn og eikker
viðtöl tekin af nokkrum strákanna, virkilega skemmtilegt að
athygli er vakin á þessu.
But no.... Þátturinn
sýndi ekki bestu hliðar Puma-sveitarinnar, og langt því frá.
Þeir gerðu mun meira úr KR-ingunum og létu þá líta út eins og
hetjur. Þvílikt hvað umsvif KR-inga ná langt. Þetta fólk er
upp til hópa vel sett í þjóðfélaginu og er mikill
fjárhagslegur styrkur við fótboltann í KR frá fjársterkum
stuðningaðilum. Þeir eiga allt og stjórna skoðunum okkar í
gegnum fjölmiðlana. Hvernig ætli álit hlutlauss mans sem að
sá þáttinn hafi verið? “Já, KR-ingarnir eru bara helvíti
seigir í stúkunni.” Auðvitað er það þannig af því að það
er borið þannig fram, eða matreitt þannig ofan í okkur. Þetta
eru bara póstmódernísk áhrif samfélagsins að skella á
okkur.
Oki, tók mér 5
mínútna pásu frá skrifunum. Var orðinn svo reiður að það kallaði á
smá online bubbles baby. Góður
núna..
Fór að gróðursetja
með hinum útskriftarnemunum, sem var bara fínt. Lentum samt á
svona leiðinlegasta deginum hvað veðrið varðar, en góður
félagsskapur bætir það upp J
Gaman að Þorvaldi Sig mar. Ég held að hann sé ekki búinn að
fyrirgefa mér frá því á busaárinu mínu. Hann spurði mig í dag,
þegar ég fór að sækja einkannirnar mínar, hvort að hann væri laus
við mig. Ég held að hann meini etta, kallinn Finnst það reyndar
ekkert nema fyndið, enda er þetta snillingur af manni að vera. En
hann tekur eflaust gleðispor við tilhugsunina um að ég verði ekki
lengur nemi eftir
morgundaginn.
Fór svo með stjórninni í kvöldmat heima hjá Gunna Jóns
kennara og félagslífsfulltrúa, og þvílík veisla mar. Uhmm.. Missti
samt af öllu desert dæminu. Ég varð svo að fara snemma því að ég
hafði lofað mér í fótbolta með strákunum og það er eitthvað sem að
ég beila ekki á. Hehe.. Heavy mikill keppnisandi eins og alltaf og
alltaf mikið fjör. Var alger sullu bolti í rigningunni en það eru
skemmtilegustu aðstæðurnar finnst mér. Við eldri strákarnir unnum
ungu pungana örugglega 15-14, en þar sem að Alli markmaður gaf þeim
svona 6 mörk á silfurfati þá er ekki hægt að segja að þetta hafi
verið mjög jafn leikur. Enda er búið að hrækja í teiginn
Hehe, ég var samt í bullinu með 3 gefins dauðafæri klikkuð og eina
morðtilraun á Arnór held ég
En anyways.. Gummi og
Óli voru að fara frá mér. Gummi var að fá
“Professional Opinion” á útskriftardressið sem að
hann ætlar að heilla alla upp úr skónum með. Stay on the
look-out for class, segi ég bara. Nice suit homie

Gummi og Sara myndarleg saman á próflokadjamminu
Tókum Profloka-partú
á Yello í fyrradag sem að gekk mjög vel. Opið til að verða
half 6 og eikkað. Var bara easy á því og að spara mig fyrir
fyllerí lífs míns annað kvöld.

Það var margt um
manninn á Yello á miðvikudaginn.

Þessi kallar sig
Herra FS 

Ívar og Gummi
skemmtu sér á Yello
Þangað til
næst...

Sigurður
Friðrik Gunnarsson
»
10.05.2007 17:09:39 / sidds
Dömur
mínar og herrar..
Blog.Central.is/sidds er stolt af því að kynna
til leiks útskriftarnema frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja vorönn
2007, Sigurð Friðrik Jakob Gunnarsson (and
the crowd goes
wild!!)
Já, góðir
hálsar. Það er komið á hreint. Ég mun útskrifast þann 19. maí. Náði
öllum prófunum mínum og ég er í sæluvímu yfir þessu öllu
saman.
Þessi próf eru
búin að vera helstressandi, þótt að ég hafi bara þurft að hafa
einhverjar teljandi áhyggjur af einu prófi, efnafræði 203, sem að
ég er búinn að vera shaky í.
Fór í 3 lokapróf, fél 203, fél 303 og efn
203. Allt á 3ja daga tímabili (mán, þri og miðvikudag) og ég
er ekki búinn að gera neitt nema að liggja yfir bókum og læra
af mér rassgatið síðan skólinn kláraðist í síðustu
viku.
Ég og Jónas
fórum svo á þriðjudagnn til Gumma Viktors (frómasinn) og hann var
svo elskulegur að kenna okkur alla efnafræðina á góðum 7 tímum og
ég og Jónas bara í grillinu yfir þessu, enda ekkert smá flókið
batterý mar. En vinnan skilaði sér og ég fékk símtal í gær í
sambandi við það að ég hafði náð prófinu og því ekkert hægt að gera
nema að hefja glös á loft og skála fyrir
því.
Ég veit að
Gylfa Má, góðvini mínum, gekk ekki neitt svakalega vel í
lokaprófinu sínu í frönskunni á sama tíma, en sendi ég honum
baráttukveðjur (ætla ekki að kvelja þig með svona “Þú
útskrifast ekki tali” eins og þú ert búinn að hreyta í mig í vetur
) og vona ég að hann hafi slefað í gegnum þetta, svo að við
getum jafnglaðst á Tyrklandi eftir 14 daga
baby!!
Annars er ég
bara búinn að vera að trúbadorast úti um allt Suðurland undanfarið.
Við Óli höfum verið að fá fullt af verkefnum hjá Framsóknarflokknum
og erum búnir að taka að okkur u.þ.b. 10 gigg á 3ja vikna kafla
fyrir þá, í Keflavík, Grindavík, Stokkseyri og á Selfossi í
gærkvöldi. Allt saman voða skemmtilegt, þótt að við séum ekki beint
framsóknarkjósendur þegar kemur að
því.
Laugardagurinn
síðasti var snilldin ein. Við spiluðum í Grindavík á
föstudagskvöldið og tókum Joey D með okkur og prófuðum að hafa smá
bongó trommur með og kom það bara virkilega þétt út þannig. Meiri
stemmning verð ég að segja fyrir mitt
leyti.
Vorum svo á
Framsóknarplaninu við Framsóknarhúsið á laugardeginum ásamt Idol
keppendunum “Hara” frá Hveragerði, sem var bara gaman. Hressar
stelpur þar á ferð. Eftir það fékk ég símtal frá Joey og hann
bað okkur um að skutla sér á Flass þar sem hann er að vinna og
bað okkur um að taka lagið með sér í beinni útsendingu. Við hikuðum
ekki við það og tókum 2 lög í beinni með Drummernum í blússandi
fíling. Heavy gaman.Byrjuðum reyndar á því að klúðra
útsendingunni, Joey það er að segja , og var það frekar
vandræðalegt enda vorum við bara á spjallinu og héldum að það væri
eikkað lag í gangi. Þá vorum við bara í loftinu að láta móðinn
mása, hehe... idiots.. 
Vorum
svo í Framsóknarhúsinu í Keflavík um kvöldið í góðra manna hópi og
þvílík törn á enda hjá okkur. Var líka alveg raddlaus á
sunnudeginum enda ekkert skrýtið kannski. 4 spilerí á 2
dögum.
Ætla að hafa
þetta stutt og laggott.
Þið sem
eruð að klára prófin, gangi ykkur vel og verið dugleg að
læra, ekker gaman að byrja sumarið á því að falla í
prófi.
I got your
back homies
p.s. er aldrei
sáttur með look-ið á þessari síðu, svo ég skipti bara um lit eins
og nærbuxur 
Þangað til
næst..
Sigurður
Friðrik Gunnarsson
»
02.05.2007 00:50:18 / sidds
“...
er ég myndlistamaður sjóna
minna?”
-S.Gunnarsson´s book of way of
living-
Svona kæmi ég fyrir ef ég
gæfi út bók í dag. Ekki það að ég sé að fara að
skrifa bók eða neitt. Bara athyglisvert hversu suddle bókageirinn
er. Ég held að sólmyrkvar sjáist oftar en blogg
frá mér, en þegar það gerist.... er það alltaf sérstakt og
eitthvað sem enginn vill missa af...
riiight...
Frá miklu að segja svo ég
ætla að sleppa smáatriðunum, ætla líka að segja frá í öfugri
tímaröð svo ég muni kannski eikkað
meira.
Var boðið að
fara á Hólmavík í sumar að vinna á Kaffi Riis, eina decent
veitingastaðnum utan höfuðborgarsvæðisins og Bautans á Akureyri.
Fjölskyldan hans Kolla á það og það væri ekkert nema gaman að fara
norður eitt sumar og upplifa sveitarómansinnn. Þruma í rollur á
löngum síðdegiskvöldum við kertaljós er eitthvað sem að enginn má
missa af, segja þeir.
Fór í síðasta tímann
minn í FS í gær (vonandi )og ég er fyrst núna að
fatta það að ég mun kannski aldrei sitja þarna sem nemandi
aftur og það er soldið sad. Ég er búinn að vera í og úr
þessum skóla núna í 5 ár, og ófáar minningar og vinatengsl
sem að maður hefur skapað innan veggja hans. Ég ætla að búa
til hetjumóment úr þessu öllu saman og hef ég undirbúið
ræðu.
(ímyndið
ykkur að leiksviðið séu Þingvellir eða eikkað annað svona
stórbrotið.)
It´s been fun guys, lots of love and
hamborgaratilboð to everybody on the
wing.
Big shout out
á Gunna Jóns, Tótu fél kennara, Hönnu Maríu baby ( wúú
wúú) Rósa
danska and much love to a fallen brother Gísli Torfa
(loved that
guy)
Love to big
dawg Þorvaldur Sig sem kenndi mér ýmislegt um
lífið
Big shout-out
á Stulla. We had our roughs, but you know I just love
you.
And a big pimpin shout til
mötuneytiskellinganna!! My homies.. You just know it´s not gonna be
the same!
Jónas
húsvörður og Sæmi, you guys would just take a bullet for us, and
you got my respect to the max. Þessir kallar geta orðið þér til
góðs í þessum skóla, ef þú efur þér tíma til að spjalla aðeins við
þá.
Óli skóli, ég verð að segja. Þú tókst við af
kvennskörungi, en þú mátt eiga það, að þú ert metnaðarmaður sem að
kann að gera vel við sitt fólk. Þú opnaðir möguleika fyrir okkur
vídeómenn til að stíga næsta skref með kaupum á öllu sem að til
þurfti og gafst okkur aðgang og treystir okur fyrir því. Ég veit að
ég tala fyrir hönd Gumma líka þegar ég skila þakklæti fyrir allt
sem að þú og Kristján hefið gert okkur kleift að
gera.
Síðast en ekki síst til bókasafnsteymisins,
Ragnheiðar og Guðmanns sem að eru orðin daglegur þáttur í
skóladeginum. Það er alltaf fínt að breyta til og nota fríið til að
kíkja inn á bókasafn í staðinn fyrir að brjóta glös og klappa svo
eins og fáviti. Mæli með því að fara inn á bókasafn og kíkja
mannlífið (oft sem að sætu stelpurnar eru gáfaðar líka) ,
glugga í athyglisvert tímarit eða bók, og ef að þetta heillar þig
ekki þá eru fullt af myndum til útlans þarna, FRÍTT, allt frá
family guy til frægra bíótitla. Ragnheiður og Guðmann eru alltaf á
hressu nótunum og fá much love frá mér.
Til nemenda sem að
sitja eftir:
Enjoy it eins
og þið getið. Ekki missa af hlutunum. Það að sitja heima af því að
einhver sem að þið þekktuð ætlaði ekki að fara er fáránlegt. Muniði
efti MORFÍS? Það var fokkin geðveikt! Hver skemmti sér ekki á
MORFÍS í Hafnarfirði? Keppnin var geggjuð, we gave them hell og
allir tóku undir í söng og klappi. Eftir keppni safnaðist fólk
fyrir á Paddy´s og það var bara snilld. Allir hópar félagslífsins
saman komin á öðru en balli. Þú gast hitt alla á þessu djammi og
svona á það að vera. Þetta snýst um það að þora að mæta og leyfa
sér að hafa gaman. Það að koma út úr skelinni minni er það besta
sem að ég hef gert á FS árunum, no doubt. Félagslífið varð varð
ekkert nema fjölbreyttara og skemmtilegra fyrir vikið. Það er
bara sorglegt að horfa upp á ferðir eins og Akureyrarferðina, þar
sem að FS átti breakthrough í sögu skólans að komast á
verðlaunapall, og 19 hræður fylgdu með norður. Ég er samt alveg
viss um að margir hafi nagað sig í handabökin þegar þeir horfðu á
stemmninguna í
sjónvarpinu.. Ég hef alla trú á næsta ári. Það er gott
fólk í stjórn áfram, sem að allir geta treyst og það er búið
að setja grunninn fyrir áframhaldandi sókn í velferðarmálum
nemenda.
Ef að
þið hafið áhuga á að sitja við stjórnvölinn og telur þig vera
einhver sem er tilbúin/n í þetta, ekki hika við að minnsta kosti
reyna fyrir þér í undirstjórn af stjórninni, svo sem ein/n af
íþróttaráði, skemmtinefnd, auglýsinganefnd, ritstjórn á árbók, eða
bara sem sjáfboðaliðið á skemmtunum við að skipuleggja ball,
söngkeppni eða því um líkt, ekki þá hika við að láta reyna á það.
Þetta er bara þroskandi og skemmtilegt. So proud of it, I put my
name on it.
Að lokum, much
love til allra vinanna sem ég hef eignast yfir árin, og ég veit að
mörg þeirra munu endast ævilangt.
Special
tribute og shout out til vinar míns Helga 50 sem deildi með mér
áhuga á einhverju frábæru og Gumma líka fyrir það. Þið eruð báðir
snillingar strákar, kennduð mér sitthvað í tæknimálum
kvikmyndaiðnaðarins sem að ég hef hafði ekki
áður.
Sigmundur
Poductions er annar kafli í þessu..
hehe..
Eins og ég segi, þið
hefðuð átt að láta sem sögusviðið væru Þingvellir og mörg
þúsund manns að hlusta á kallinn gala ofan af berginu.
Ljóðrænt..
Allavega, eins og
sagði áðan þá finnst mér það sad að vera að yfirgefa þessa
stofnun (vonandi) og það er búin að vera þessi
fílingur í mér undanfarið. Fannst bara við hæfi að þakka
fyrir mig.
En ég fór á síðustu
kvöldmáltíðin með kennurunum síðasta föstudag, og ég get svo
svarið fyrir það... awesome. Það er bara súrrealískt að þurfa
ekki að fela áfengi fyrir þessum kennurum á skemmtunum, en að
skála með þeim og sleppa sér! Segi ekki meira, undirbúið bara
gott kvöld þegar kemur að
þessu.
Gerðum dimmisio vídeó og kemur það inn á
www.fss.isí dag. Var virkilega sáttur
með það. Var staðráðinn í að gera öflugasta vídeó í sögu
dimmisioanna. Horfði á nokkur frá undanförnum misserum og
reyndi að fara ótroðnar slóðir eins mest og hægt er. Alltaf
eikkað classical joke sem að gaman er að hafa með líka. Vil
þakka öllum sem að gáfu allt í þetta vídeó. Allir aðalsmenn,
og þeir sem að voru með við gerð þess geta verið heavy stolt
af sér. Sést bara á öllum hvað þetta er frábær hópur í þessum
aðli. Það er alltaf stemmning, sama hvað við erum að gera.
Ótrúlegt hvernig 35 manns geta náð að þetta sig svona.
Spurning hvort að dramað vaxi með 2ja vikna dvöl í Tyrklandi
á sama hóteli ? En ég er out, búinn að vera allt of lengi
að þessu.
Snoðaði mig aftur
fyrir Tyrkland. Finnst þetta bara of þægilegt. Hættur að
nenna að safna þessu og fara í klippingu, geri þetta bara
sálfur.
Þangað til
næst...
Sigurður Friðrik
Gunnarsson
»
07.04.2007 20:03:48 / sidds
Var að sörfa YouTube núna rétt í þesu og rakst á gamlann
skólafélaga minn sem að spilaði með mér í High School þegar ég var
skiptinemi í USA fyrir nokkrum árum.
Kappinn heitir Clifford Hammonds og er
jafngamall mér (´85 árgerð) hann er 1.90 á hæð og er hér að
spila með Clemson Háskólanum á móti North Carolina Háskólanum.
Þetta er And1 (karfa og villa með) í sem að
flestir væru sáttir með.
http://www.youtube.com/watch?v=WN8muijuPlg
Þess má geta að lýsirinn segir hann ekki vera þekktan fyrir
þetta "athleticism" (íþróttagetu) en ég má til með að segja ykkur
að hann hefði getað orðið atvinnu football spilari, spretthlaupari
eða langstökkvari. Hann var stjarnan í öllum þessum íþróttagreinum
þegar hann var í High School.
Gleðilega Páska
Þangað til næst..
Sigurður Friðrik Gunnarsson
»
29.03.2007 18:39:39 / sidds
Eins og allir vita þá er Starfshlaup FS á morgunn og er þessi
stórviðurður árlegur vettvangur metings, æsings og keppnisskaps
milli bæjarfélaga.. s.s. allir á móti Grindavík yfirleitt enda eru
þeir Back2Back defending champions.
Ég, Kolli og Camilla förum fyrir vaskri
sveit spútniksliðsins sem kennir sig við Appelsínugula litinn.
Ætlum við að koma öllum á óvörum og negla þessa keppni með dugnaði
og ódrepandi liðsanda.

Skilaboð til allra þeirra sem að skráðir eru í Appelsínugula
liðið:
Mæting 08:30 í stofu 335
Mætið klædd í allann þann appelsínugula fatnað sem að þið
eigið
Verið tilbúin að skemmta ykkur og leyfa ykkur að gera smá fífl
úr ykkur á meðan Starfshlaupinu stendur.
Þetta er ekkert nema gleði 

Var að klára að gera myndband, eða öllu heldur sketch fyrir
Grindavíkurliðið. Auglýsing fyrir næsta leik í undanúrslitarimmunni
við Njarðvík. Læt linkinn flakka með hérna fyrir neðan..
http://www.youtube.com/watch?v=pWNHpIqldh4&eurl
=
Þangað til næst..
Captain Sigurður Gunnarsson
»
08.03.2007 09:38:26 / sidds
Hvað getur maður sagt?
Ég á ekki til eitt aukatekið orð yfir
því hversu vel Hljóðneminn (söngvakeppni FS) heppnaðist í gær.
Tilraunastarfsemi að hafa þetta í skólanum og bjóða fólki frítt
inn. Held að það hafi svínvirkað og ég hef sjaldan séð svona marga
saman komna í salnum.
Þetta er búin að vera virkilega
spennandi og skemmtileg vika, ef að þið voruð á keppninni í gær og
sáuð video-trailerana sem að voru spilaðir á undan hverjum
keppenda, þá er það ekkert leyndarmál að þar voru ég og Gummi ásamt
dyggum aðstoðarmönnum að verki. Þetta concept var virkilega að gera
sig og gerði þetta virkilega fagmannlegt í alla staði. Ég er alltaf
að fá meiri fiðring fyrir kvikmynda- og auglýsingagerð, eftir því
sem að maður gerir meira og ég held að stefnan sé klárlega sett á
nám við kvikmyndagerðaskóla Vestanhafs að loknu
stúdentsnámi.
Það sem að flestallir vita ekki með
gærkveldið er að það var svona backstage crew í gangi sem að sá um
að showið rynni smurt fyrir sig, og eins mikið og maður vildi reyna
að slaka á fyrir sitt atriði, þá komst maður ekki hjá því að vera
pælandi í öllum hlutunum sem þurfa að vera í lagi þegar svoa lagað
er sett upp.
Af hverju getum við FS-ingar ekki
verið eins samstíga í þessum efnum og flestir skólar
höfuðborgarsvæðisins? Þá er ég að meina, þegar eitthvað svona major
event er í gangi, þá vilja sem flestir hjálpa til við að gera það
sem glæsilegast, en í FS er það alltaf sama fólkið sem er viljugt
til að hjálpa til og leggja hönd á plóg. Ímyndið ykkur bara hversu
glæsilegur Hljóðneminn hefði orðið ef að segjum 10-15 manns hefðu
boðið sig fram við að hjálpa til við uppsetningu sviðs, tjalda og
eða bara nýjar ferskar hugmyndir J Það munar um svona fólk og svona school
spirit.
En heilt yfir þá held ég að allir
hafi verið í skýjunum með keppnina, sigurvegarinn var glæsilegur og
verður gaman að fylgjast með Nönnu í landskeppninni á Akureyri í
apríl. Virkilega gott frumsamda lagið hennar og af hverju er enginn
að gefa neitt út eftir hana?? Ég kom sjálfum mér þægilega á óvart
verð ég að segja, en ég átti engann veginn von á því að lenda í
verðlaunasæti, hvað þá 2. sæti !! Ég á þetta sem stórann bonus
við frábært kvöld Árni Þór lenti í 3.
sæti, en hann stóð sig líka alveg þrusuvel og fyrir keppnina hafði
ég spáð honum sigri, enda er strákurinn einstaklega skemmtilegur
vocal-isti.
Aðrir keppendur höfðu mikið fram að færa
og ber þar helst að nefna Ragnheiði Tinnu og hennar hóp sem að tók
kántrí lag sem að var bara ekkert nema gullfallegt. Atriðin hjá
Kristínu og Röggu ásamt Joey D kom skemmtilegt inn og þá voru
Pjásurnar á skotskónum og settu punktinn yfir i-ið með Eurovision
tribute-inu sínu. Langskemmtielgasta showið þar á ferð.
Án þess að vera telja alla upp, þá er
skemmst frá því að segja að öll atriðiðn voru hverju öðru
glæsilegra og mega allir vera stoltir af sínu.
Ég vill þakka Óla Árna sem að spilaði
með mér á gítar fyrir að útsetja lagið með mér og gefa sér tíma
fyrir þetta. Upprunalega lagið er mun rólegra og svona
tilfinningaþrungnara, en við ákváðum að reyna að fara okkar eigin
leiðir með útsetninguna á því, og viti menn, það gerði það svona
líka gott.
Ég ætla ekki að verða neitt emotional
hérna, en ég vil samt bara segja hvað ég er ánægður með þá
staðreynd að ég talaði við "gamlan vin" í fyrsta skipti í
rúmt 1 og hálft ár held ég á Hljóðnemakvöldinu, og þó að það hafi
ekki verið neinar djúpar samræður, þá var það vissulega ánægjulrgt
og snart mig soldið. Mér finnst ekkert glataðra en leiðindi,
og ég vona að við getum verið vinir þrátt fyrir allt sem að hefur
gengið á í gegnum tíðina. Það er og verður alltaf væntumþykja í
þinn garð. Þú veist hver þú ert Dimmalimm.

Ég og
Óli in full action

Bríet Sunna veitti verðlaunin og ég
býst við því að kossinn hafi verið aukaverðlaun 
Þangað til næst…
Sigurður Friðrik Gunnarsson
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|